Játningar prjónafíkils...
11.4.2009 | 17:11
Ég er Yarness. Ég er međ prjóna/hekl-dellu á háu stigi. Ég fer helst ekki út úr húsi nema taka prjónana/heklunálina međ mér og ég er sífellt ađ horfa í kringum mig og telja út munstur. Ég hef stoppađ ókunnugt fólk úti á götu og talađ um prjónlesiđ sem ţađ klćđist. Ég hef hangiđ tímunum saman á Ravelry, Garnstudio og fleiri prjónasíđum ađ skođa, spá og spegúlera. Ég hef líka vafrađ um eBay í leit af hinum fullkomnu prjónasettum. Ađrir á heimilinu (mađur og köttur) hafa ekki fariđ varhluta af ţessari dellu. Ţeir hafa lent í löngum rökrćđum um garn, prjónfestu, úrtöku og annađ skemmtilegt. Ţađ besta er ađ kötturinn er alltaf sammála mér, viđ erum međ svo líkan smekk!
Kvöldin eru minn tími til hannyrđa. Algengustu setningar mínar eftir kl. 19 á kvöldin eru:
"Uss, ég er ađ telja!"
"Elskan, hvađ keypti ég aftur margar dokkur af garninu ţarna um daginn?"
og
"Ćtli ţetta sé ekki sćtt í eingirni/lopa/smart garni o.s.frv."
Ásamt muldri sem er oftast eitthvađ í ţessa áttina: "tvćr sléttar, ein brugđin, band yfir prjón, ein óprjónuđ, steypa yfir, tvćr sléttar, ein brugđin, band yfir..."
Og nú hefur prjónadellan semsagt dregiđ mig međ sér á bloggiđ!
Knit happens!
Athugasemdir
velkomin á bloggiđ prjónakona
Sigrún Óskars, 11.4.2009 kl. 19:25
Vá hvađ ég kannast viđ ţessar setningar, sat hér einmitt í gćrkvöldi og sussađi á einn drenginn minn og sagđi "uss, ég er ađ telja" hahaha. Var líka megniđ af gćrdeginum prjónandi í bílnum, ferlega hentugt :)
Gullý (IP-tala skráđ) 12.4.2009 kl. 14:46
Bćta viđ athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.