Óbeit mín á Mohair...
17.4.2009 | 22:33
Ég hef mikla óbeit á Mohair garni. Ég tók einu sinni að mér að klára flík úr einhverju Mohair-i og sór þess eið að prjóna aldrei úr því aftur!
Að svitna í lófunum undan "loðnunni" og geta ekki rakið upp er eitthvað sem ég þoli ekki!
Ég hef nú töluvert verið í froskadeildinni (= að rekja upp) og það að geta ekki rakið upp loðið garn án þess að það færi í klessu er ekki fyrir mig!
Í prjónaskap er það að frétta að verkefnin mokast áfram hægt en örugglega. Í næstu viku skrepp ég á Akureyri og ætla að kaupa mér eitthvað sjúklega fallegt sumarlegt garn til að gera eitthvað skemmtilegt! Á verkefnaskrá er meðal annars Gormatrefill og Dömupeysa í febrúar og svo á ég eftir að prjóna sitt lítið af hverju úr bókinni Prjóniprjón! Jiiii hvað ég get ekki beðið eftir sumarfríinu svo ég geti bara setið og prjónað og heklað
Athugasemdir
En fyndið. Mig langar einmitt að gera þessa peysu og svona gormatrefil. Hvar fær maður uppskrift að svona trefli?
Linda LitlaSkvís (IP-tala skráð) 20.4.2009 kl. 09:41
Það er uppskrift af gormatrefli á Ravelry en ég hugsa að ég noti aðra sem ég fékk úr munnlegri geymd samstarfskonu minnar. Þar fitjar maður upp á x lykkur (man auðvitað ekki fjöldann... þarf að fá þetta skriflegt) og prjónar svo tvöfalt í hverja lykkju (bæði framan í og aftan í) og eitthvað fíneríis. Mér finnst það flottara en Ravelry útgáfan sem btw. endar í 1600 lykkjum sem þarf að fella af !
Yarness Von Knittenborg, 20.4.2009 kl. 17:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.